Húsavík – Botnsvatn. Haustlitaferð
DAGS
Kl.
10-15
BROTTFÖR Kl.
10
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
19. september, laugardagur
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Margrét K. Jónsdóttir
Ekið til Húsavíkur. Gengið er eftir göngustíg sem liggur í fjallinu bláa, Húsavíkurfjalli. Gengið upp að Botnsvatni og hringinn í kringum vatnið
eftir þægilegum göngustíg. Þaðan liggur leiðin niður með ánni og í gegnum Skrúðgarðinn. Mjög falleg leið.
Gangan tekur 2–3 klst. Eftir ferðina geta þau sem vilja gengið út að Gatklettinum við Bakka með fararstjóra.
Vegalengd alls 11 km. Gönguhækkun: 310 m.
Verð: 2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.
Búnaður
Gönguferðir: 1 skór
Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff

